25desember

2 í jólum!!!!!!!!!!!!

Sælar elskurnar
2 í jólum party okkar verður hjá Andra á Bjarnahól 7
mæting er kl 21:00 að staðartíma

Sjáumst  hress og kát og högum okkur vel  við erum svo fullorðin ;)



kveðja

25. desember 2008 klukkan 16:10
1986
Engin athugasemd
29nóvember

...

fyrir þá sem ekki hafa ratað á það þá erum við með hóp á facebook : 2. í jólum hjá tjernobyl ('86) Höfn

Andri er síðan búinn að bjóða sig fram til að vera með partýið í ár, glæsó að vera búið að redda því Laughing
29. nóvember 2008 klukkan 12:11
1986
Engin athugasemd
07apríl

tími á færslu neee

Bíll til sölu Opel Astra árgerð 2000 ekinn 97 þúsundkm tilboð óskast  8689599

Litla barnið mitt til sölu, svakalegt látið þetta berast 

kveðja Lóa Hrönn
07. apríl 2008 klukkan 23:52
1986
1 athugasemd
25desember

2.jólum partý

hjá Villa - mæting kl. 21
25. desember 2007 klukkan 15:59
1986
4 athugasemdir
22nóvember

hmmm...

smá óopinberleg skoðunakönnun... hverjir verða á Höfn um jólin og þá sérstaklega 2. í jólum og það sem mestu skiptir hver mun hýsa gleðskapinn í ár?
22. nóvember 2007 klukkan 20:31
1986
16 athugasemdir
17september

Dekur

Sæl allir saman Nú er ég byrjuð aftur í Baðhúsinu og er á föstudögum og laugardögum. Á föstudögum er opið til 20 og laugardögum til 16. Strákar ef ykkur vantar gjöf fyrir elskuna þá er dekur málið það bara getur ekki klikkað.
Pantið tímanlega síminn er 5615100 eða á dekur@isf.is

Sé ykkur kveðja Lóa spóa




17. september 2007 klukkan 19:37
1986
6 athugasemdir
13ágúst

sumarið er tíminn

jæja fallega fólk, hvað er síðan að frétta? sumarið er nú bara eiginlega búið án þess að hafa byrjað almennilega, króaði sjálfa mig af inní horni útí skinney þinganes í sumar og hef verið frekar lélegur félagsskapur í sumar.
'87 árgangurinn er núna búinn að jafna okkur hvað varðar barneignir og skilst að þaú séu eiginlega bara að fara taka framúr, hvort sem það segir meira til um ófrjósemi okkar eða bara betri einbeitningu í kynfræðslutímum í Heppu veit ég ekki.
látið síðan heyra í ykkur hvað er búið að vera bralla í sumar Hlæjandi

kv. Guðrún
13. ágúst 2007 klukkan 20:11
1986
4 athugasemdir
15júní

Tími á nýja færslu

Halló  Halló Lóa hér
Hvernig hafið þið það ?
Allir að mæta á hátið á höfn er það ekki???
Ég ætla allavegna mæta þar sem ég er að flytja á höfn í sumar :) bara í 2 mánuði verð að vinna á snyrtistofunni svo allir strákar og stelpur panta tíma hjá mér það er byrjað að bóka :D

Annars lítið að segja og vona að það verði gaman á höfn í sumar. Hitti Baldur og hans fallegu frú niðri í bæ um síðustu helgi skemmtileg tilviljun það :) ásamt því að ég var með soffíu og söndru efast að þær muni eftir þorstinn var mikill hjá þeim vinkonum. Hitti reyndar Öllu og man ekki eftir því útaf því ég hélt hún væri önnur  og nennti ekki að horfa á hana og gaf feitast skít í hana ( tek fram að ég var ekki full var að flýta mér) Fyrirgefðu Alla mín :p

Hef lítið annars séð af ykkur hinum við sjáumst bara á balli á hátið á höfn :)
Steinunn Hödd kærasta finns er að fara til costadel sol í sumar og verður í skóla þar hún fær stórt prik í kladdan skemmtu þér vel við hin hugsum vel um Finn huggum hann reglulega ;)

hver vill koma í útileigu ?

sumarKveðja Lóa spóa
15. júní 2007 klukkan 14:17
1986
5 athugasemdir
06maí

Afmælisbarn dagsisns er....

Hún Lóa okkar er 21. árs í dag...
Lóa Hrönn

Til hamingju með daginn sæta!!!
06. maí 2007 klukkan 23:00
1986
4 athugasemdir
04maí

Long Time No See!

Hæ öllsömul,

Ég var beðinn um að setja inn færslu á þessa ágætu bloggsíðu og hér er hún loksins :)

Fyrst, þá verð ég bara að harma það að ég hef ekki komið til Höfn í 7 ár, eða síðan ég flutti aftur í Garðabæinn. Tími
minn á Höfn var stuttur en samt náði ég að mynda tengsl við þó nokkuð marga, takk fyrir að leyfa mér það.

Anyways, hvað er svo að frétta af mér?


Eins og staðan er í dag þá er ég staddur í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í
Charlotte, Norður Karólínu. Ég er hérna í alþjóðaviðskiptanámi í University of North Carolina at Charlotte. Ég gifti mig sumarið 2005 á Clearwater Beach, Florida (mynd að neðan). Hún heitir Catherine og gengur í sama skóla og ég og við erum mjög hamingjusöm saman. Ennfremur, þá varð ég pabbi þann 24. april, semsagt fyrir rúmri viku. Við Catherine, eignuðumst son, sem heitir Ólafur Isaac Baldursson (mynd að neðan). Já, svona er lífið mitt þessa stundina og ég vona svo innilega að þið öll Hafnarfólk hafi haft það sem allra best og muni halda áfram á þeirri braut.

Með bestu kveðjum,

Baldur Freyr Ólafsson


B&CGiftingLitli Strákurinn minn
04. maí 2007 klukkan 23:57
1986
6 athugasemdir

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur